Ágústa
banner
agustakrunkar.bsky.social
Ágústa
@agustakrunkar.bsky.social
Just a nerd. She/her.
Stundum les ég blöðin og finn til aldursins. Hver? Hvar? Hvað? Og í guðanna bænum, hvers vegna?
October 2, 2026 at 11:59 PM
Til lukku með daginn, @asdiso.bsky.social ! Ég held alltaf svolítið upp á þessa af okkur 😃
September 23, 2026 at 10:18 AM
“Veistu af hverju við þurrkum okkur?” spyr fjögurra ára guttinn með tóntegund þess sem ætlar að koma með merkilegar upplýsingar. “Nei,” segi ég. “Það er til þess að taka mesta vatnið af” segir hann ábúðarfullur en bætir svo við: “en ekki minnsta vatnið. Við þurfum það.”
September 14, 2026 at 8:29 PM
Reposted by Ágústa
Ofurklár kall 1: Hey kjellingarnar eiga eftir að kvarta yfir kynjakvóta á þessu námskeiði hvað eigum við að gera?
Ofurklár kall 2: við búum bara til konu með ofurkröftunum okkar (AI)! 🤓
September 13, 2026 at 11:37 AM
4ra ára guttinn, hlaupandi yfir gangbraut: “Ég geng bara rösklega!”
September 6, 2026 at 1:24 PM
Fróðleiksmoli dagsins í boði 4ra ára guttans: “Mamma, flóðhestar eru jurtaætur. Ekki matætur.“
September 3, 2026 at 7:36 PM
“Ég elska þig!” segir 4 ára guttinn og réttir mér samanbrotinn bréfmiða. “Opnaðu hann!” Myndin er af bleiku hjarta. “Oh, en fallegt 😍”, segi ég, “teiknaðirðu þetta sjálfur?” “Já, í leikskólanum. Í leikskólanum teiknaði ég þessa rækju”
August 30, 2026 at 12:54 PM
Það er verið að taka til. Eldri drengurinn, sem byrjar í 2. bekk á morgun, kom með skólaverkefnin sín frá því í fyrra og spurði mig hvað hann ætti að gera við þau. “Tja, viltu eiga þetta?” spyr ég. “Já, auðvitað” svarar hann hneykslaður, “þetta eru ljúfar minningar úr fyrsta bekk!”
August 24, 2026 at 7:42 AM
Ég tók mynd af Skottu sem þið verðið að sjá:
August 22, 2026 at 9:04 AM
Ég, að reyna að fá sjö ára guttann til að hafa áhuga á náttúruvísindum: “Veistu, að það hefur ekki sést almyrkvi í Reykjavík í næstum 600 ár?!” Hann, kominn langt í sinni vegferð að breyta mér í beinaryk: “Ha?!? Varst þú til þá??”
August 12, 2026 at 5:36 PM
“Ég lærði um fugl í leikskólanum í dag” tilkynnti leikskólabarnið mér í óspurðum fréttum. “Nú, hvaða fugl?” “Ég … man ekki hvað hann heitir” “Hvernig er hann á litinn?” “Ég veit það ekki” “Ó. Ókei, hvað lærðirðu um fuglinn?” “Ég man það ekki.” Og þar með lauk þessum upplýsandi samræðum. 🐥
August 10, 2026 at 5:48 PM
“Mamma, hvað gerir vatn við hár?” spyr sá 4ra ára. “Ha”, segi ég, “hvað áttu við?” “Mamma, hvers vegna er sett vatn á höfuðið á börnum þegar verið er að útskýra þau?”
August 3, 2026 at 2:00 PM
Sjö ára guttinn að horfa á gamalt uppáhaldsvídeó: “Þetta er barnalegt” (Katy Perry, Roar, þegar tígrisdýrið gleypir guttann).
Við erum semsagt búin að uppgötva kúlið.
July 20, 2026 at 7:44 PM
Reposted by Ágústa
There's no fossil fuel based energy security in the age of ubiquitous cheap long-range attack drones.
July 16, 2026 at 12:08 PM
Ég fór í bað án þess að setja nammi í vaskinn (vaskurinn er hennar staður, hundurinn nær ekki í það þar). Smákaka er ekkert sérstaklega reið, meira … vonsvikin.
July 6, 2026 at 10:49 AM
Stundum er Smákaka bara of mikið krútt.
July 5, 2026 at 10:31 PM
Ég var að slá með rafmagnssláttuorfi þegar spottinn kláraðist. “Afhverju hættirðu að slá?” spurði eldri drengurinn. “Mig vantar nýjan spotta, ég þarf að sjá hvort við eigum annan” sagði ég. Og þá kom sá 7ára, bráðum 43ja, með þennan eðalpabba: “Ferðu ekki bara á Spottify?!”
July 5, 2026 at 4:41 PM
Já, það er fúlt hvað það getur verið erfitt að setja jákvætt spin á uppsagnir þeirra sem vinna við að setja jákvætt spin á það sem þú gerir.
July 3, 2026 at 2:19 PM
Hvert í þreifandi. Og ég sem var að vonast eftir góðu veðri um helgina 😩
July 2, 2026 at 7:44 PM
Ég mun aldrei hætta að ergjast yfir því að það sé ekki hægt að leita eftir talmáli á streymisveitum. 😡😡😡😡
June 20, 2026 at 6:47 PM
Hvað dreymir Skottu? Eingöngu röng svör.
June 17, 2026 at 10:03 PM
Ég að pósa með rabbarbara eins og karlmenn pósa með fisk:
June 14, 2026 at 4:29 PM
Ég að taka til í eldhúsinu: Það er ekki orðið snyrtilegt. En! Það er snyrtilegra en það var. Og snyrtilegra er *betra* en snyrtilegt! Er það ekki? ER ÞAÐ EKKI!!?
June 13, 2026 at 9:45 AM