#LifidmedME
Það er verið að hafna fólki sem getur vart staðið í fæturnar um hjólastól.

Það þarf að hætta NÚNA!

#LifiðMeðME #MEAwareness #LongCovidAwareness
February 24, 2026 at 12:01 PM
June 30, 2025 at 5:49 PM
Flestir eiga auðvelt með að hlaða batteríin með smá hvíld. Við sem erum með ME náum aldrei fullri hleðslu, sama hversu vel er hlaðið og lengi...

#LifidmedME #Vitundarvakning #ME #MyalgicEncephalomyelitis #MEAwareness #LongCovid #LongCovidAwareness
February 8, 2026 at 10:01 AM
„Ég hleyp 10 km fyrir ME félag Íslands”

Innilegar þakkir fyrir að hlaupa fyrir okkur í Reykjavíkurmaraþoninu Lovísa 💙

Til að heita á Lovísu www.rmi.is/hlaupastyrku...

#reykjavikmarathon #lífiðmeðme #MyalgicEncephalomyelitis #myalgicencephalomyelitis #EkkiGefastUpp #LCer #MEer #meawareness
July 5, 2025 at 4:05 PM
“ME er ósýnilegur sjúkdómur sem mörgum þykir erfitt að útskýra enda standa læknavísindin að einhverju marki ráðalaus frammi fyrir vandanum.

#lífiðmeðme #myalgicencephalomyelitis #meawareness #longcovidawareness
October 26, 2025 at 10:01 AM
Vissir þú að UngME vefsíðan er með upplýsingar fyrir ungmenni með ME og forráðamenn þeirra.
buff.ly/EnmuDM8

#LifidMedME #Vitundarvakning #ME #LC
January 14, 2026 at 12:01 PM
„Ég hef sama metnað og áður en því miður ekki sömu orku eða einbeitingu til að fylgja honum eftir. Það er orkan til framkvæmda sem er hér takmarkandi þáttur, ekki metnaðurinn.”

#lífiðmeðme #MEawareness #LCer #MEvitundarvakning #millionsmissing #MEer #LongCovid
July 8, 2025 at 5:21 PM
Þegar konur bíða 4 árum lengur en karlar að meðaltali eftir ME-greiningu er ljóst að heilbrigðiskerfið þarf að bregðast betur við.

#LifidMedME #Vitundarvakning #MyalgicEncephalomyelitis #LangvinntCovid
March 25, 2026 at 11:02 AM
Ítarleg virknidagbók úr Virkniaðlögun er aðgengileg á vefsíðu félagsins:
👉 buff.ly/kA3NtmP

Hjálpar til við að fylgjast með virkni, orku og einkennum og greina mynstur.

#LifidMedME #Vitundarvakning #ME #LC #LangvinntCovid
March 4, 2026 at 12:01 PM
Vissir þú að forgangsröðunar­eyðublaðið úr bókinni Virkniaðlögun er á vefsíðu félagsins. buff.ly/OsWfTTB

#LifidMedME #Vitundarvakning #ME
January 7, 2026 at 12:02 PM
Við einangrum okkur oft til að verja þá litlu orku sem eftir er.

Fyrir fólk með ME og langvinnt COVID getur hvers kyns áreiti sogið frá okkur orkuna og valdið mikilli örmögnun.

Hvar eru teymin sem eiga að grípa okkur?

#LifidMedME #Vitundarvakning #MEAwareness #LongCovidAwerness
February 11, 2026 at 12:02 PM
Vissir þú að það er til hópur á facebook sem heitir Spjallhópur ME félags Íslands
buff.ly/ilKBLEU

#LifidmedME #Vitundarvakning #ME #MyalgicEncephalomyelitis #MEAwareness
January 5, 2026 at 12:01 PM
Vissir þú að það er til hópur á Facebook eingöngu ætlaður einstaklingum með ME/LC sem heitir ME tips Íslands.
buff.ly/kRvGPPV

#LifidMedME #Vitundarvakning #ME #LC
January 9, 2026 at 12:01 PM
Einkennalisti þeirra sem eru með ME er langur. Orkuleysið og takmörkuð getan til að endurheimta orkuna er hinsvegar það lang stærsta og hefur mest áhrif á öll hin.

# lifidmedme #Vitundarvakning #ME #MyalgicEncephalomyelitis #MEAwareness #LongCovid #LongCovidAwareness
November 2, 2025 at 10:00 AM
Ég var alinn upp við að leti væri löstur, óæskileg hegðun. Eftir að ég fékk ME getur letin einmitt bjargað mér frá því að veikjast illa og geta ekkert í marga daga...

#LifidmedME #Vitundarvakning #ME #MyalgicEncephalomyelitis #MEAwareness #LongCovid #LongCovidAwareness
January 11, 2026 at 10:01 AM
Það mikilvægasta til að forðast slæm köst með ME er að gera ekki of mikið. Það er verra að þurfa að útskýra fyrir fólki hvað of mikið er orðið ofsalega lítið...

#LifidmedME #Vitundarvakning #ME #MyalgicEncephalomyelitis #MEAwareness #LongCovid #LongCovidAwareness
January 18, 2026 at 10:01 AM
Ég þarf stöðugt að vera að hvíla mig þó ég eigi ekki endilega auðvelt með svefn. Ég er af þeim sökum orðinn nokkuð góður í að hvílast, enda kennir neyðin manni víst ýmislegt...

#LifidmedME #Vitundarvakning #ME #MyalgicEncephalomyelitis #MEAwareness #LongCovid #LongCovidAwareness
February 1, 2026 at 10:01 AM
Eitt af því sem mér hefur reynst snúið að útskýra fyrir fólki er hvernig sú þreyta sem ég bý við í dag er frábrugðin þeirri sem ég gerði áður og flestir upplifa, á hverjum degi...

#LifidmedME #Vitundarvakning #ME #MyalgicEncephalomyelitis #MEAwareness #LongCovid #LongCovidAwareness
January 25, 2026 at 10:00 AM
Börn með ME eða langvinn einkenni Covid þurfa oft að takast á við daglegt líf af lítilli orku, sem hefur áhrif á lífið heima, í skóla og í samfélaginu.

Hvar eru teymin sem eiga að grípa okkur?

#LifidMedME #Vitundarvakning #MyalgicEncephalomyelitis #LangvinntCovid
April 3, 2026 at 1:04 PM
Fyrir mörg með ME og langvinn einkenni Covid er sárt að horfa á vinnumarkaðinn úr fjarlægð. Löngunin til að vinna er enn sterk.

Þetta snýst ekki um vilja heldur heilsu, orku og skort á úrræðum.

Hvar eru teymin sem eiga að grípa okkur?

#LifidMedME #LangvinntCovid
March 18, 2026 at 12:03 PM
Fyrir marga með ME og langvinn einkenni Covid getur læknaheimsókn verið krefjandi.
Skortur á skilningi og vantrú getur haft djúp áhrif, aukið einkenni og valdið örmögnun.

Hvar eru teymin sem eiga að grípa okkur?

#LifidMedME
February 18, 2026 at 12:02 PM
Einföld virknidagbók úr bókinni Virkniaðlögun er aðgengileg á vefsíðu félagsins.
👉 buff.ly/ZOWMUqg

Hún getur hjálpað við að fá betri yfirsýn yfir orku og virkni.

#LifidMedME #Vitundarvakning #MyalgicEncephalomyelitis #LangvinntCovid #MEAwareness #LongCovidAwerness
February 4, 2026 at 12:02 PM